Jón Jónsson (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 13:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 13:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson


Jón Jónsson sjómaður á Þingeyri fæddist í Hlíð undir Eyjafjöllum 24. júlí 1881 og lézt 14. ágúst 1953 í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Gunnhildur Gunnhildardóttir vinnukona á Þorvaldseyri, f. 1853 og Jón Hjartarson vinnumaður í Hlíð, f. 1838.

Jón fluttist til Eyja 1902 og stundaði sjómennsku.

Kona hans var Steinunn Sigurðardóttir, síðar húsfreyja á Þingeyri. Hann var síðari maður hennar.
Þau eignuðust eitt barn, Magnús Júlíus, f. 1. júlí 1905, d. 1942.

Þau Steinunn bjuggu í Lambhaga 1920. Þau byggðu húsið Þingeyri 1921 og bjuggu þar til ársins 1924, er þau seldu það Sigurjóni Sigurðssyni og fluttust til Vesturheims.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.