Jón Guðmundsson (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2012 kl. 14:53 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2012 kl. 14:53 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Guðmundsson


Jón Guðmundsson fæddist 15. júlí 1905 og lést 4. mars 1972.

Jón var kvæntur Rósu Guðmundsdóttur. Börn þeirra voru Gunnar f.1940, Guðmundur f.1943 d.1945, Helga f.1947 og Guðríður f.1958.

Fjölskyldan bjó fyrst í Miðey við Heimagötu og svo á Kirkjubæjarbraut 9.

Jón var formaður á mótorbátnum Ver.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðmund:

Jafnan sigli jagtar braut
Jón frá Goðalandi,
afla löngum háan hlaut
hetjan síróandi.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Jón Guðmunds, sannur sonur,
sýnir þétt aflann fína.
Ver stýrir bragninn bæri,
bárur þó ýfi Kári.
Bólgnum í brima svelgi
blakk súða lætur flakka.
Heppinn sá kólgu kappi
kann sín á miðum hranna.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.