„Jón Guðmundsson (Litlabæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Jón Guðmundsson (Litlabæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 6: Lína 6:
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  
*Prestþjónustubækur.}}
*Prestþjónustubækur.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]

Núverandi breyting frá og með 17. ágúst 2015 kl. 12:17

Jón Guðmundsson frá Litlabæ fæddist 27. mars 1862 og hrapaði til bana 28. júlí 1876.
Foreldrar hans voru Guðmundur Pétursson sjómaður frá Elínarhúsi f. 1836, d. 19. janúar 1900, og kona hans Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. júní 1831, d. 22. nóvember 1916.

Jón var með foreldrum sínum í fyrstu. Móðir hans hvarf til lands 1871 og hann var 9 ára sveitarbarn í Kastala hjá Arndísi Jónsdóttur á því ári, 10 ára þar 1872, 11 ára niðursetningur hjá Þorgerði Gísladóttur í Görðum við Kirkjubæ 1873, 12 ára hjá Valgerði Jónsdóttur og Einari Jónssyni í Litlabæ 1874 og 14 ára þar 1876, er hann hrapaði til bana úr Ufsabergi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.