Jón Þorleifsson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 09:57 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 09:57 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorleifsson, sýslumaður 1801 til 1812. Foreldrar hans voru Þorleifur Nikólásson að Ási í Holtum og kona hans Guðrún Jónsdóttir að Stóra-Núpi, Magnússonar. Hann stundaði nám í Skálholtsskóla í tvo vetur og síðar í Reykjavíkurskóla eldri og lauk þaðan stúdentsprófi. Fór utan 1793 og var skráður í stúdentatölu við háskólann í Kaupmannahöfn og lagði þar meðal annars stund á lögfræði, en lauk ekki prófi. Fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu 1801 og lausn frá embætti á eftirlaunum 1812. Drukknaði við Eyjar nokkru síðar. Fyrri kona hans var Þórunn Ólafsdóttir, ekkja Jóns sýslumanns Eiríkssonar og bjuggu þau í Stakkagerði. Síðari kona: Bóel Jensdóttir í Ámundakoti í Fljótshlíð, Sigurðssonar og bjuggu þau á Oddsstöðum. Börn þeirra, sem upp komust voru Arnfríður sem átti Guðmund Sigurðsson á Oddsstöðum og Þórður, sem dó ókvæntur og barnalaus.