Jón Ögmundsson (Dalbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. maí 2013 kl. 11:26 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. maí 2013 kl. 11:26 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: Jón Ögmundsson (Dalbæ) '''Jón Ögmundsson''' í Dalbæ fæddist 8. júlí 1840 í Reynisholti í Mýrdal og var á lífi 1901.<br> Foreldrar Jóns voru [[Ögmundur ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ögmundsson (Dalbæ)

Jón Ögmundsson í Dalbæ fæddist 8. júlí 1840 í Reynisholti í Mýrdal og var á lífi 1901.
Foreldrar Jóns voru Ögmundur Árnason bóndi í Reynisholti í Mýrdal, síðar í Eyjum, f. 10. október 1809, d. 10. janúar 1888, og kona hans Þóra húsfreyja, f. 1814, d. 14. apríl 1860, Jónsdóttir.

Jón var með foreldrum sínum í Reynisholti til ársins 1860, vinnumaður þar 1860-1864, fyrirvinna í Presthúsum þar 1864-1865, bóndi þar 1865-1876, vinnumaður í Norður-Hvammi þar 1876/7-1878.
Hann fluttist til Eyja 1878, var vinnumaður þar, - í Stakkagerði var hann 1880 og 1890, hjá Þóru dóttur sinni í Dalbæ 1901.

Kona Jóns Ögmundssonar var Rannveig húsfreyja í Presthúsum í Mýrdal, f. 1829, d. 7. mars 1876, Björnsdóttir bónda í Steinum, f. 1802, Jónssonar og konu Björns, Guðrúnar húsfreyju, f. 1804, d. 29. desember 1877, Jónsdóttur.

Barn Jóns og Rannveigar hér:
Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Dalbæ, f. 17. júní 1868, d. 11. mars 1965, gift Helga Guðmundssyni í Dalbæ, f. 9. júlí 1870, d. 11. mars 1924.
.


Heimildir