„Jón Ólafsson (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 12: Lína 12:
Kona Jóns, (1867),  var [[Geirdís Ólafsdóttir (Vilborgarstöðum)|Geirdís Ólafsdóttir]], f. 1843 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. 30. maí 1917 í Vesturheimi.

Kona Jóns, (1867),  var [[Geirdís Ólafsdóttir (Vilborgarstöðum)|Geirdís Ólafsdóttir]], f. 1843 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. 30. maí 1917 í Vesturheimi.

Börn hér:

Börn hér:

1. Kristín Jónsdóttir, f. 1864. Hún var með þeim í Berjanesi 1870, 6 ára.

1. [[Kristín Jónsdóttir yngri (Gjábakka)|Kristín Jónsdóttir]] húsfreyja á [[Gjábakki|Gjábakka]], f. 1864, d. 12. mars 1955 Vestanhafs.

2. Halldóra Jónsdóttir, f. 5. febrúar 1869. Hún var eins árs með foreldrum sínum í Núpakoti 1870.

2. Halldóra Jónsdóttir, f. 5. febrúar 1869. Hún var eins árs með foreldrum sínum í Núpakoti 1870.

3. [[Gísli Jónsson (Nýjabæ)|Gísli Jónsson]] bóndi í [[Nýibær|Nýjabæ]], f. 1873.

3. [[Gísli Jónsson (Nýjabæ)|Gísli Jónsson]] bóndi í [[Nýibær|Nýjabæ]], f. 1873.

Útgáfa síðunnar 22. janúar 2015 kl. 13:20

Jón Ólafsson húsmaður á Vilborgarstöðum fæddist 1841 í Jórvík í Álftaveri og lést 29. október 1918 í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Ólafur Ólafsson bóndi, lengst í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 24. september 1814 í Lágu-Kotey í Meðallandi, d. 20. september 1896, og kona hans Ástríður Þorbjörnsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1799, d. 29. apríl 1883.

Jón var með foreldrum sínum í Hólakoti, Minni-Borg og Berjanesi u. Eyjafjöllum, var síðan húsmaður í Berjanesi til 1887.
Hann kom til Eyja 1887, var vinnumaður í Dölum, en síðan húsmaður á Vilborgarstöðum. Hann fór til Vesturheims 1902 frá Vilborgarstöðum ásamt Geirdísi, Gísla syni sínum og fjölskyldu hans. Sama ár fór Ólína og Skúli, börn þeirra, vestur.

Jón var með foreldrum sínum í Hólakoti, Minni-Borg og Berjanesi u. Eyjafjöllum, var síðan húsmaður þar 1870 og 1880.
Þau Geirdís fluttust að Kirkjubæ 1889 með Skúla 8 ára og voru þar í vinnumennsku. Jón var vinnumaður í Dölum 1890, húsmaður í Vanangri 1891 með Geirdísi og börnunum Skúla og Sigurði, (Sigurður er a.ö.l. hulinn). Jón var „sjálfs sín“ á Vilborgarstöðum 1892, lausamaður þar 1893 og 1894 með Geirdísi, 1895 þar með Geirdísi og Skúla 14 ára.
Jón var leigjandi á Vilborgarstöðum 1901, en þá var Geirdís hjá Gísla syni sínum í Nýjabæ. Hann fór til Vesturheims 1902 ásamt Geirdísi, Gísla syni sínum og fjölskyldu hans. Sama ár fór Ólína og Skúli, börn þeirra, vestur.

Kona Jóns, (1867), var Geirdís Ólafsdóttir, f. 1843 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. 30. maí 1917 í Vesturheimi.
Börn hér:
1. Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 1864, d. 12. mars 1955 Vestanhafs.
2. Halldóra Jónsdóttir, f. 5. febrúar 1869. Hún var eins árs með foreldrum sínum í Núpakoti 1870.
3. Gísli Jónsson bóndi í Nýjabæ, f. 1873.
4. Ólína Jónsdóttir, f. 10. febrúar 1877, d. 2. febrúar 1956. Hún var vinnukona á Gjábakka 1901, fór til Vesturheims 1902 frá Steinum u. Eyjafjöllum.
5. Ólöf Jónsdóttir vinnukona í Vallnatúni u. Eyjafjöllum, f. 1. maí 1879, d. 4. mars 1963.
6. Skúli Jónsson vinnumaður á Gjábakka, f. 29. nóvember 1881. Hann fór til Vesturheims frá Gjábakka 1902.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Íslendingabók.is.
• Manntöl.
• Prestþjónustubók.
• Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.