Jóhannes H. Long

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2007 kl. 11:38 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2007 kl. 11:38 eftir Johanna (spjall | framlög) (Jóhannes Long færð á Jóhannes H. Long)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhannes H. Jóhannsson Long fæddist 18. ágúst 1894 í Firði í á Seyðisfirði og lést 7. mars 1948 í flugslysi á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. Hann bjó í Vöruhúsinu við Skólaveg 2 en þar starfrækti hann verslun ásamt Georg Gíslasyni, einnig starfaði hann sem verkstjóri. Kona hans var Bergþóra Ástrós Árnadóttir fædd 13. sept. 1888 í Vestmannaeyjum, d. 17. okt. 1969 í Reykjavík. Börn þeirra voru: Árni Theodór verslunarmaður f.13. apríl 1920 d. 4.okt 1979, Anna Hulda, f. 2.okt. 1923, Ólafur f, 16. febr. 1926 d. 23. okt. 1996, Jóhanna Dóra, f.19. júní 1928 og Lárus Garðar málari og verkstjóri, f. 22. mars 1931 d. 13.maí 1999.


Heimildir

  • Gunnlaugur Haraldsson. Longætt II. Þjóðsaga: Reykjavík, 1998.