Jóhanna Einarsdóttir (Helgahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. janúar 2016 kl. 20:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. janúar 2016 kl. 20:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhanna Einarsdóttir''' frá Helgahjalli fæddist 2. júlí 1874 í Pétursborg í Eyjum, fór til Vesturheims 1880. <br> Foreldrar hennar voru [[Einar Jóns...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Einarsdóttir frá Helgahjalli fæddist 2. júlí 1874 í Pétursborg í Eyjum, fór til Vesturheims 1880.
Foreldrar hennar voru Einar Jónsson smiður og mormónatrúboði, f. 16. ágúst 1839 á Sámsstöðum í Fljótshlíð, d. 25. maí 1900 í Eyjum, og fyrsta kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Helgahjalli, síðar í Utah, f. 24. júlí 1849, d. 8. maí 1931.

Hálfbróðir Guðrúnar, sammæddur, var Sigurður Þorleifsson húsasmíðameistari í Utah, nefndi sig Sigurd Thor Leifson, f. 20. september 1859, d. 8. mars 1922 í Utah.

Jóhanna var með foreldrum sínum í Pétursborg til 1877, síðan í Helgahjalli og fór með þeim og Ágústínu systur sinni til Utah 1880.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.