Jóhann Guðjónsson (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. apríl 2016 kl. 18:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. apríl 2016 kl. 18:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jóhann

Jóhann Guðjónsson, Kirkjubæ, fæddist 20. desember 1901 að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og lést 20. ágúst 1924. Foreldrar hans voru Guðjón Eyjólfsson og Halla Guðmundsdóttir.

Jóhann byrjaði ungur sjómennsku, fyrst á Emmu hjá Eiríki Ásbjörnssyni en síðar á fleiri bátum. Formennsku hóf hann á Sigríði II árið 1923 en eftir þá vertíð pantaði hann bát frá Danmörku ásamt Gísla J. Johnsen sem hét Soffía. Þann bát sá Jóhann aldrei því hann féll fyrir borð af Friðþjófi og drukknaði.

Myndir



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.