„Jóhann Þ. Jósefsson“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(8 millibreytingar ekki sýndar frá 3 notendum)
Lína 1: Lína 1:
'''Jóhann Þ. Jósefsson''' fæddist 17. júní 1886 og lést 15. maí 1961, 74 ára gamall. Jóhann var fastur þingmaður Vestmannaeyja á tímabilinu 1923-59.
[[Mynd:Jóhann Þ. Jósefsson.jpg|thumb|250px|Jóhann]]
[[Mynd:KG-mannamyndir 16336.jpg|thumb|220px|Jóhann og Jón Guðmundsson frá París.]]
 
'''Jóhann Þ. Jósefsson''' fæddist 17. júní 1886 og lést 15. maí 1961, 74 ára gamall. Foreldrar hans voru [[Jósef Valdason]] skipstjóri og [[Guðrún Þorkelsdóttir (Fagurlyst)|Guðrún Þorkelsdóttir]]. Þ-ið í nafni Jóhanns stendur fyrir Þorkel en Jóhann notaði ávallt skammstöfunina.
 
Fyrri kona Jóhanns var Svanhvít Ólafsdóttir. Þau gengu í hjónaband 15. október 1915. Hún lést tæpu ári síðar, aðeins 22 ára gömul.
 
Seinni kona Jóhanns var [[Magnea Dagmar Þórðardóttir|Magnea D. Þórðardóttir]]. Þau gengu í hjónaband 22. maí 1920 í Reykjavík. Heimili Magneu og Jóhanns í Eyjum var í húsinu [[Fagurlyst-gamla|Fagurlyst]] sem Jóhann hafði látið reisa við Urðarveg. Í Fagurlyst ríkti menningarbragur og var þar gestkvæmt. Magnea og Jóhann eignuðust þrjú börn, Svönu Guðrúnu, Ágústu og Ólaf.
 
Jóhann var fastur þingmaður Vestmannaeyja á tímabilinu 1923-59. Á þessum árum gerði hann fjöldamargt fyrir hag Eyjanna.
 
Jóhann rak í félagi við [[Gunnar Ólafsson (kaupmaður)|Gunnar Ólafsson]]
fyrirtækið ''Gunnar Ólafsson & co.'' frá árinu 1910 og höfðu þeir umsvifamikinn atvinnurekstur bæði í verslun og útgerð. Jóhann var frumkvöðull í atvinnulífi Eyjanna og beitti sér meðal annars fyrir stofnun [[Björgunarfélag Vestmannaeyja|Björgunarfélags Vestmannaeyja]] og kaupum á björgunarskipinu Þór, fyrsta varðskipi Íslendinga sem var vísir að Landhelgisgæslunni. Hann var ræðismaður Þýskalands frá 1919 og lengi síðan.
 
Hann var kjörinn í fyrstu bæjarstjórn Vestmannaeyja 1918 og átti sæti þar næstu tvo áratugi. Hann hlaut kosningu sem þingmaður Eyjamanna 1923 og sat á Alþingi allar götur til 1959. Hann var einn af stofnendum Íhaldsflokksins 1924 og Sjálfstæðisflokksins 1929. Jóhann var fjármála- og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar 1947-49 og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Ólafs Thors 1950.
 
Fjölskyldan fluttist búferlum til Reykjavíkur árið 1935 og bjuggu þau þar á Bergstaðastræti 86.  Jóhann lést í Hamborg í Þýskalandi 15. maí 1961 eftir að hafa veikst skyndilega þegar þau hjónin voru á leið heim af þingi Evrópuráðsins í Strassborg.
 
== Tenglar ==
* [http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1259663&issId=106938&lang=0 Viðtal við Jóhann í ''Morgunblaðinu'' í tilefni af sextugsafmæli sínu]
 
{{Heimildir|
* Magnea Þórðardóttir, aldarminning, í ''Morgunblaðinu'', 10. október 2001.
}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Birkihlíð]]

Leiðsagnarval