Ingveldur Magnúsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. desember 2006 kl. 21:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. desember 2006 kl. 21:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ingveldur Magnúsdóttir frá Löndum, húsmóðir á Kirkjubæ, f. 2. janúar 1796 í Yztabæliskoti u. Eyjafjöllum, d. 13. október 1868 í Eyjum.

Foreldrar hennar voru Magnús bóndi í Yztabæliskoti, f. um 1765, Jóns, f. 1732, Þorleifssonar og kona hans (16. maí 1793) Sesselja Árnadóttir, f. um 1769, d. 7. febr. 1841 í Eyjum.
Ingveldur var systir Magnúsar Magnússonar í Háagarði, sem var móðurfaðir Magnúsar í Hlíðarási Guðmundssonar.

Ingveldur var ekkja á Kirkjubæ 1845.
Maki: Oddur Ögmundsson, f. um 1787, d. 1837.
Börn:

  1. Sesselja, f. 10. ágúst 1815.
  2. Sigurður, f. 24. júlí 1817.
  3. Magnús, f. 1822, drukknaði 1867.
  4. Þuríður, f. 12. maí 1829, d. 1903.
  5. Ingveldur, f. 1831. Hún er ásamt móður sinni hjá Magnúsi bróður sínum 1845.

Heimildir

  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigfús M. Johnsen: Þórarinn Hafliðason fyrsti mormónatrúboðinn í Vestmannaeyjum. Blik, 1960.