Ingunn Lísa Jóhannesdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. janúar 2024 kl. 16:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. janúar 2024 kl. 16:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ingunn Lísa Jóhannesdóttir''' frá Knarrarhöfn við Fífilgötu 8, húsfreyja, starfsmaður í þvottahúsi fæddist 9. október 1961.<br> Foreldrar hennar voru Jóhannes Tómasson frá Höfn, bankastarfsmaður, aðstoðarútibússtjóri, f. 13. mars 1921, d. 18. júlí 2015, og kona hans Guðfinna Stefánsdóttir frá Skuld, húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 8. júní 1923, d....)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingunn Lísa Jóhannesdóttir frá Knarrarhöfn við Fífilgötu 8, húsfreyja, starfsmaður í þvottahúsi fæddist 9. október 1961.
Foreldrar hennar voru Jóhannes Tómasson frá Höfn, bankastarfsmaður, aðstoðarútibússtjóri, f. 13. mars 1921, d. 18. júlí 2015, og kona hans Guðfinna Stefánsdóttir frá Skuld, húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 8. júní 1923, d. 10. október 2019.

Börn Guðfinnu og Jóhannesar:
1. Margrét Rósa Jóhannesdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 23. mars 1948. Maður hennar Gylfi Tryggvason.
2. Erna Jóhannesdóttir kennari, íþróttakennari, fræðslufulltrúi, f. 6. júlí 1950. Maður hennar Egill Egilsson.
3. Tómas Jóhannesson gjaldkeri, f. 2. mars 1956. Kona hans Fanney Björk Ásbjörnsdóttir.
4. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, f. 4. janúar 1959. Kona hans Halldóra M. Hermannsdóttir.
5. Ingunn Lísa Jóhannesdóttir húsfreyja, starfsmaður í þvottahúsi, f. 9. október 1961. Maður hennar Valtýr Þór Valtýsson, látinn. Sambúðarmaður hennar Sveinbjörn Guðmundsson.
6. Iðunn Dísa Jóhannesdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 9. október 1961. Maður hennar Ágúst Einarsson.

Ingunn Lísa var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Valtýr giftu sig 1983, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Búhamar 44.
Valtýr lést 2002.

I. Maður Ingunnar Lísu, (23. júlí 1983), var Valtýr Þór Valtýsson húsasmiður, kaupmaður, f. 25. maí 1955, d. 1. desember 2002.
Börn þeirra:
1. Valur Valtýsson, f. 21. maí 1983.
2. Erna Valtýsdóttir, f. 9. febrúar 1990.
3. Aron Valtýsson, f. 26. mars 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.