Ingunn Arnórsdóttir (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. ágúst 2014 kl. 11:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. ágúst 2014 kl. 11:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ingunn Arnórsdóttir (Kornhól)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ingunn Arnórsdóttir vinnukona fæddist 12. mars 1805 í Áskoti í Ásahreppi, Rang. og lést 4. maí 1842.
Foreldrar hennar voru Arnór Hjaltason bóndi, f. 1750, d. 6. mars 1820 og fyrri kona hans Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1764, d. 8. maí 1814.

Ingunn var með föður sínum og Guðrúnu Sigvaldadóttur stjúpu sinni í Áskoti 1816, vinnukona á Reyðarvatni á Rangárvöllum 1835.
Hún fluttist vinnukona að Vilborgarstöðum 1838. Þar eignaðist hún andvana barn í desember 1838. Hún var vinnukona í Kornhól 1840 og eignaðist þar 2 börn að auki með Þórði Árnasyni. Annað barnið fæddist andvana, hitt dó úr stífkrampa (ginklofa).
Ingunn lést 1842 í Háagarði.

Barnsfaðir Ingunnar var Þórður Árnason, þá ókvæntur vinnumaður, f. 3. maí 1809, d. 7. september 1869.
Börn þeirra voru:
1. Andvana stúlka, f. 6. desember 1838.
2. Ingunn Þórðardóttir, f. 28. maí 1840 í Kornhól, d. 4. júní 1840 úr ginklofa.
3. Andvana stúlka, f. 20. júní 1841.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
  • Prestþjónustubækur.