Ingibjörg Sigríður Kolbeinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Sigríður Kolbeinsdóttir frá Hvoli við Urðaveg 17a, húsfreyja, verkakona, starfsmaður Hraunbúða fæddist 4. desember 1957.
Foreldrar hennar Kolbeinn Oddur Sigurjónsson frá Sandfelli á Húsavík, sjómaður, f. þar 2. september 1932, d. 27. maí 2020, og kona hans Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal, húsfreyja, f. 26. ágúst 1932, d. 2. maí 1992.

Börn Sigríðar og Kolbeins:
1. Harpa Kolbeinsdóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður í Hraunbúðum, f. 10. febrúar 1954 í Vatnsdal. Fyrrum sambúðarmaður hennar Páll Sveinsson. Fyrrum maður hennar Haraldur Geir Hlöðversson. Fyrrum maður hennar Gestur Gunnbjörnsson. Maður hennar Ómar Valur Eðvaldsson.
2. Anna Ísfold Kolbeinsdóttir verkakona, sjókona, starfsmaður Hraunbúða, þríburi, f. 24. nóvember 1955, d. 21. júní 2017. Fyrrum sambýlismaður hennar Halldór Guðmundsson, látinn. Fyrrum sambýlismaður hennar Haukur Hauksson.
3. Marý Ólöf Kolbeinsdóttir verkakona, skrifstofumaður, rekur Miðstöðina með eiginmanni sínum, þríburi, f. 24. nóvember 1955. Maður hennar Sigurvin Marinó Sigursteinsson.
4. Guðrún Fjóla Kolbeinsdóttir húsfreyja, rekur veitingastað í Vogum á Vatnsleysuströnd, þríburi, f. 24. nóvember 1955. Fyrrum sambýlismaður Sigurjón Ragnar Grétarsson. Maður hennar Jörundur Guðmundsson.
5. Ingibjörg Sigríður Kolbeinsdóttir verkakona, starfsmaður Hraunbúða, f. 4. desember 1957. Sambýlismaður hennar Baldur Þór Bragason. Barnsfaðir hennar Örn Jónsson.
6. Elfa Sigurjóna Kolbeinsdóttir húsfreyja í Englandi, vinnur við umönnun aldraðra, f. 17. maí 1963. Maður hennar Patrick Tear.
7. Kolbeinn Freyr Kolbeinsson verkamaður, öryrki, f. 10. mars 1973. Fyrrum sambýliskona hans Jóhanna Ýr Jónsdóttir.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð verkakona, starfsmaður Hraunbúða.
Þau Baldur voru í sambúð, eignuðust eitt barn, en skildu.
Hún átti barn með Erni 1989.

I. Sambúðarmaður Sigríðar, skildu, var Baldur Þór Bragason frá Rvk, sjómaður, stýrimaður, f. 22. maí 1959, d. 8. janúar 2022.
Barn þeirra:
1. Einar Birgir Baldursson, f. 5. janúar 1979. Kona hans Íris Sif Hermannsdóttir.

II. Barnsfaðir Sigríðar er Örn Jónsson, f. 29. mars 1953.
Barn þeirra:
2. Kolbeinn Aron Arnarson, verkamaður, f. 30. nóvember 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.