Ingibjörg Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. ágúst 2006 kl. 11:11 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. ágúst 2006 kl. 11:11 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum 1. júlí 1922 og lést 21. júlí 2006. Foreldrar hennar voru Margrét Jónsdóttir og Árni J. Johnsen. Ingibjörg giftist Bjarnhéðni Elíassyni frá Rangárvöllum árið 1945. Börn Ingibjargar og Bjarnhéðins eru Árni, Margrét Áslaug, Þröstur og Elías Bjarnhéðinn. Ingibjörg ólst upp í Suðurgarði en ásamt manni sínum bjó hún í Ásnesi um langan tíma.

Ingibjörg sem var oftast kölluð Imba Johnsen, rak blóma- og gjafavöruverslun í Eyjum í um 50 ár. Hún vann að æskulýðs- og bindindismálum með hundruðum ungmenna í Eyjum. Hún gegndi auk þess margvíslegum trúnaðarstörfum í félagsmálum og stýrði starfi templara um áratuga skeið og starfaði með Stórstúku Íslands, landssamtökum bindindismanna. Ingibjörg vann við barnavernd, tók virkan þátt í starfi kirkju og KFUM og K og sinnti þannig margs konar þjónustu í Vestmannaeyjum fyrir hugsjónir sínar.


Heimildir

  • Morgunblaðið, 29. júlí, minningargreinar.