Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 10:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 10:01 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir húsfreyja í Bræðratungu fæddist 19. október 1926.
Foreldrar hennar voru Einar Björn Sigurðsson frá Pétursborg, f. 25. október 1895, d. 14. nóvember 1964 og kona hans Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. maí 1904, d. 23. júní 1994.

Maður Ingibjargar Ágústu er Jón Runólfsson vélvirkjameistari frá Bræðratungu, f. 29. nóvember 1924.
Börn þeirra eru:
1. Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja á Dalvík, f. 19. október 1944, d. 14. febrúar 2013. Maður hennar var Bragi Jónsson smiður.
2. Unnur Jónsdóttir húsfreyja og bóndi í Kjós, f. 26. maí 1949. Maður hennar er Bjarni Kristjánsson bóndi.
3. Inga Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. mars 1951. Maður hennar er Friðfinnur Finnbogason kaupmaður.
4. Jón Ágúst Jónsson, f. 29. september 1952, d. 6. febrúar 1953.
5. Jón Ágúst Jónsson smiður á Selfossi, f. 4. mars 1955. Kona hans er Margrét Jónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.