Ingólfur Matthíasson (Byggðarenda)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2012 kl. 13:27 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2012 kl. 13:27 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ingólfur

Ingólfur Símon Matthíasson fæddist 17. desember 1916 og lést 18. október 1999. Hann bjó að Hólagötu 20. Síðustu árin bjó hann á Hraunbúðum. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Júlía Sveinsdóttir og Matthías Gíslason á Byggðarenda. Ingólfur var eldri bróðir Óskars Matthíassonar.

Ingólfur var skipstjóri á Haferni VE.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Ingólf:

Annar hér æginn kannar
arfi Matthías djarfur,
grér þann í veiði veri
veit ég með Ingólfs heiti.
Frosta í Ránar rosta
rakkur siglir nú frakkur.
Képpinn fisk hraður hreppir,
hugaður víkings maður.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.