Ingólfur Arnarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Ingólfur Arnarson og frú

Ingólfur Arnarson fæddist 31. ágúst 1921 og lést úr krabbameini 12. september 2002. Ingólfur fæddist í Vestmannaeyjum og var hér uppalinn. Móðir hans var Sólrún Eyjólfsdóttir verkakona í Vestmannaeyjum fædd 1892. Ingólfur kvæntist 31. maí 1946 Beru Þorsteinsdóttur, dóttur Þorsteins Jónssonar og Elínborgar Gísladóttur í Laufási. Þau eignuðust þrjá syni:


Ingólfur lauk námi við Barnaskóla Vestmannaeyja, stundaði nám í íþróttaskóla í Haukadal og tók mótorvélapróf. Hann lærði rafsuðu í Kaupmannahöfn og var í þrjú ár í vélvirkjanámi í Vélsmiðjunni Magna. Í kjölfarið stofnaði hann sjálfur ásamt öðrum Vélsmiðjuna Völund árið 1957. Sama ár lauk hann meistaraprófi í plötu og ketilsmíði.

Ingólfur stofnaði fiskverkunina Eyjaver sf árið 1961 og tengdist jafnframt útgerð á Ingþór VE-75 og Stefáni Þór VE-15.

Ingólfur var bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og sat í byggingarnefnd og brunamálanefnd Vestmannaeyja 1958-1962 og í hafnarstjórn 1958-1970. Hann var formaður Íþróttafélagsins Þórs 1942-1948 og 1952-1954 og formaður Alþýðuflokksfélags Vestmannaeyja 1951-1954 og 1957-1961.

Ingólfur vann mikið fyrir sjávarútveginn. Hann var í stjórn LÍÚ, framkvæmdastjóri Útvegsbændafélags Vestmannaeyja og seinna Útvegsmannafélags Suðurnesja. Hann var formaður Fiskideildar Vestmannaeyja og síðar formaður Fiskideildar Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og nágrennis.

Frá 1978-1981 var Ingólfur umsjónarmaður þátta um sjávarútveg og siglingar í Ríkisútvarpinu.

Myndir