Hákonarhús

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júní 2007 kl. 13:22 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júní 2007 kl. 13:22 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hákonarhús Halldóra Kristín (Dóra) og Guðmundur (Mundi) - Myndina málaði Jói listó

Húsið Hákonarhús stendur við Kirkjuveg 88 og var byggt árið 1926. Það voru þau Hákon Kristjánsson og kona hans Vilhelmína sem byggðu húsið og fluttu inn ásamt syni sínum Guðmundi 1928.

Hákon og Vilhelmína keyrðu möl og sandi á handvagni frá Hásteini og upp á Kirkjuveg 88, þau fluttu síðan inn í húsið óeinangrað með segl í hurðargötum. Guðmundur Hákonarson byggði síðan við húsið 1942 og bjó þar ásamt konu sinni Halldóru Kristínu Björnsdóttur frá Bólstaðarhlíð og 7 börnum sínum Birni, Halldóri Inga, Guðmundi, Ólafi, Eygló, Bjarna Ólafi og Þresti.

Húsið var stækkað árið 1942 og aftur 1955-1960.

Eigendur og íbúar


Heimildir

  • Kirkjuvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.