Hvíld við Höfðaveg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 09:22 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 09:22 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gistiheimilið Hvíld stendur við Höfðaveg 16. Húsið var í eigu Sigríðar I. Sigurðardóttur frá Skuld en hún og eiginmaður hennar, Ingólfur Theódórsson, netagerðarmeistari, byggðu húsið. Heiti hússins er dregið af því að hinum megin götunnar stendur varðan Hvíld, þar sem fyrr á tíð var áningarstaður Ofanbyggjara. Árið 2006 reka gistiheimilið Hvíld þau Þorgeir Richardsson og Þórdís Sigurjónsdóttir.

Við Faxastíg 14 stendur einnig hús sem heitir Hvíld.