Hof

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 09:08 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 09:08 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Hof var byggt árið 1906 af Magnúsi Jónssyni sýslumanni og stóð við Landagötu 26. Var þetta timburhús ofan á hlöðnum kjallaragrunni. Voru veggir kjallarans sérlega þykkir og var mikil steypa á milli steinanna. Yfirsmiður var Magnús Ísleifsson í London og var þetta fyrsta húsið sem Magnús sá um smíði á.

Frá upphafi var Hof aðsetur sýslumanns en eftir að Vestmannaeyjar fengu kaupstaðarréttindi var Hof aðsetur bæjarfógeta.

Húsið fór undir hraun.