„Hjörleifur Sigurjónsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Lagfæringar.)
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:


{{Heimildir|
{{Heimildir|
*''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson.]]''
*''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].''
*''Ljósmæður á Íslandi''. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
*''Ljósmæður á Íslandi''. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
*Páll Eggert Ólason: ''Íslenzkar æviskrár''. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1948-1976.
*Páll Eggert Ólason: ''Íslenzkar æviskrár''. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1948-1976.

Útgáfa síðunnar 14. júní 2007 kl. 14:04

Hjörleifur Sigurjónsson fæddist 25. október 1872 og lézt 5. júní 1954.

Ætt og uppruni

Foreldrar hans voru Sigurjón bóndi í Strandhöfn í Vopnafirði og Tjörn og Völlum í Svarfaðardal, en síðast búsettur á Húsavík, f. 24. september 1840 í Haga í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, d. 16. maí 1926 á Húsavík, Jónsson bónda í Haga, Árnasonar og konu Jóns, Helgu Jónsdóttur bónda á Hólmavaði, Magnússonar. Kona Sigurjóns og móðir Hjörleifs var Þórdís húsmóðir, f. 19. nóv. 1846 á Ytri-Galtarstöðum í Hróarstungu í S-Múlasýslu, d. 25. desember 1909 á Húsavík, Hjörleifs prests á Völlum í Svarfaðardal, Guttormssonar og konu hans Guðlaugar Björnsdóttur prest í Kirkjubæ í Hróarstungu, Vigfússonar.

Lífsferill

Hjörleifur stundaði sjómennsku og útgerð á Húsavík og í Eyjum eftir að hann fluttist þangað 1924. Var hann um skeið í félagi með Helga Benediktssyni. Á efri árum gerðist hann húsvörður við Barnaskólann, en flutti til dóttur sinnar að Brekku við Vatnsenda í Kópavogi 1948.

Maki (6. ágúst 1921): Stefanía Hannesdóttir ljósmóðir. Þau bjuggu í Engidal.
Barn (kjörbarn): Björg Sigurveig, f. 24. júní 1920, búsett að Brekku við Vatnsenda í Kópavogi. Maki: Hilmar Árnason, d. 1991.


Heimildir

  • Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
  • Páll Eggert Ólason: Íslenzkar æviskrár. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1948-1976.
  • Pers.
  • Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.
  • Svarfdælir.