Hjálp:Efnisyfirlit

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. júlí 2005 kl. 10:06 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2005 kl. 10:06 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þessi síða er hugsuð sem hjálp fyrir notendur síðunnar.

Hvað er Heimaslóð?

Heimaslóð er gagnvirkur menningarsöguvefur fyrir Vestmannaeyjar - sögusetur á netinu sem hugsaður er til þess að varðveita menningararf Eyjanna um ókomna tíð.

Hvernig virkar Heimaslóð?

Heimaslóð keyrir á MediaWiki hugbúnaðinum, sem er sérstaklega hannaður og forritaður af sjálfboðaliðum um heim allan til þess að hýsa ýmiskonar upplýsingaveitur þar sem að innbyrgðis tengsl upplýsinga er mikill.

Fyrir sakir Heimaslóðar hefur MediaWiki hugbúnaðinum verið breytt smávegis, til þess að aðlagast þeim kröfum sem að voru gerðar. Það að nota blik er tiltölulega einfalt, en þarfnast þó einhverrar kunnáttu, og er því búið að gera leiðbeiningarbækling um allt það helsta.

Hverjum er vefurinn ætlaður?

Öllum sem eiga einhverjar rætur að rekja til Vestmannaeyja. Öllum sem að finna sig knúna til þess að fræðast um Vestmannaeyjar og læra um þann menningararf sem að eyjarnar hafa að geyma. Öllum sem að vilja vita eitthvað um Vestmannaeyjar, óháð því hversu lítilvægt eða ómerkilegt það kann að hljóma.