Hjálp:Efnisyfirlit

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. mars 2005 kl. 08:56 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. mars 2005 kl. 08:56 eftir Smari (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þessi síða er hugsuð sem hjálp fyrir notendur síðunnar.

Hvað er Blik?

Blik er gagnvirkur menningarsöguvefur fyrir Vestmannaeyjar - sögusetur á netinu sem hugsaður er til þess að varðveita menningararf Eyjanna um ókomna tíð.

Hvernig virkar Blik?

Blik keyrir á MediaWiki hugbúnaðinum, sem er sérstaklega hannaður og forritaður af sjálfboðaliðum um heim allan til þess að hýsa ýmiskonar upplýsingaveitur þar sem að innbyrgðis tengsl upplýsinga er mikill.

Fyrir sakir Bliks hefur MediaWiki hugbúnaðinum verið breytt smávegis, til þess að aðlagast þeim kröfum sem að voru gerðar. Það að nota blik er tiltölulega einfalt, en þarfnast þó einhverrar kunnáttu, og er því búið að gera leiðbeiningarbækling um allt það helsta.

Hverjum er Blik ætlað?

Öllum sem eiga einhverjar rætur að rekja til Vestmannaeyja. Öllum sem að finna sig knúna til þess að fræðast um Vestmannaeyjar og læra um þann menningararf sem að eyjarnar hafa að geyma. Öllum sem að vilja vita eitthvað um Vestmannaeyjar, óháð því hversu lítilvægt eða ómerkilegt það kann að hljóma.