Hinrik G. Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 11:03 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 11:03 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hinrik G. Jónsson fæddist 2. janúar 1908 í Vestmannaeyjum og var nefndur Hinrik Guðmundur. Foreldrar hans voru Jón Hinriksson framkvæmdarstjóri og bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og kona hans Ingibjörg Rannveig Theódórsdóttir Mathiesen frá Hafnarfirði.

Hinrik lauk stúdentsprófi í Reykjavík árið 1928 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1936. Hann var framkvæmdastjóri Kf. Fram í Eyjum 1929-1933. Málflutningsmaður í Vestmannaeyjum frá 1. júlí 1936 þar til hann var kosinn bæjarstjóri í mars 1938. Eftir bæjarstjórastörf sín vann hann við lögfræðistörf í Eyjum í tvö ár. Þá lá leið hans í Neskaupsstað þar se hann var bæjarfógeti í tvö ár. Hinrik sýslumaður var sýslumaður Snæfells- og Hnappadalssýslu árið 1949 og gegndi því embætti til æviloka.

Hann var í stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja 1930-1947 ásamt því að gegna ýmsum trunaðarstörfum hér í Eyjum og á öðrum stöðum.

Kona Hinriks hét Unnur Magnúsdóttir. Hinrik lést 19. mars 1965.



Heimildir

  • Haraldur Guðnason: Við Ægisdyr. Saga Vestmannaeyjabæjar, seinna bindi. Reykjavík, 1991.