Hilmisgata

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2005 kl. 15:44 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2005 kl. 15:44 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hilmisgata fær nafn sitt frá heimsókn konungs. Gatan hafði þá ekkert nafn og eftir að konungur gekk um götuna var ákveðið að kalla götuna Hilmisgötu, því hilmir þýðir jú konungur.

Einungis 7 íbúðir eru við Hilmisgötu og skv. upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ búa 21 manns í götunni. Áætlað er að byggja fjölbýlishús á reitnum þar sem að lögreglustöðin gamla var en hún brann til kaldra kola árið 1988.

Húsið Arnardrangur er í götunni. Þar hefur mörg starfsemi verið í gegnum tíðina. Arnardrangur var byggður árið 1928. Flest húsin á svæðinu eru byggð á sama tímabili.

Nokkrar stofnanir og félög eru í götunni; Snyrtistofa Ágústu, Rauði Krossinn, Lions-klúbburinn, Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar og Akóges.

Meistari Daníel Steingrímsson býr í húsinu Ólafsvík að Hilmisgötu 7. Ólafsvík var byggð árið 1930. Þegar komið var að því að gefa húsinu nafn stóð húseigandinn á gati. En hann leit á hinn nýreista Arnardrang og fannst við hæfi að kalla sitt hús Ólafsvík þar sem að bæði nöfn koma af Snæfellsnesi.