Hilmisgata

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 09:13 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 09:13 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hilmisgata fær nafn sitt frá heimsókn Kristjáns 10. Danakonungs, 25. júní árið 1921. Gatan hafði þá ekkert nafn en gekk þó undir nafninu Tukthússtígur og eftir að konungur gekk um götuna var ákveðið að kalla götuna Hilmisgötu, því hilmir merkir konungur.

Íbúðarhúsin við Hilmisgötu. Utan þessa húsa er aðeins eitt íbúðarhús við Hilmisgötu.

Einungis 7 íbúðir eru við Hilmisgötu og skv. upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ eru íbúar götunnar 21 talsins. Áætlað er að byggja fjölbýlishús á reitnum þar sem lögreglustöðin gamla var en hún brann til kaldra kola árið 1988.

Húsið Arnardrangur er í götunni. Þar hefur ýmiss konar starfsemi verið í gegnum tíðina; heilsugæsla og læknastofur, Tónlistarskólinn, aðstaða Lúðrasveitar Vestmannaeyja og AA samtökin. Nú er Rauðakrossdeildin í Vestmannaeyjum þar til húsa svo og Lionsklúbbur Vestmannaeyja. Arnardrangur var byggður árið 1928. Flest húsin á svæðinu eru byggð á sama tímabili.

Nokkrar stofnanir og félög eru í götunni; Snyrtistofa Ágústu, Rauði Krossinn, Lions-klúbburinn, Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar og Akóges.

Húsið Ólafsvík er að Hilmisgötu 7, en húsið var byggt árið 1930. Þegar komið var að því að gefa húsinu nafn stóð húseigandinn á gati. En hann leit á hinn nýreista Arnardrang og fannst við hæfi að kalla sitt hús Ólafsvík þar sem bæði nöfn koma af Snæfellsnesi.

Nefnd hús á Hilmisgötu

Gatnamót