Hilmar Rósmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. nóvember 2005 kl. 10:04 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. nóvember 2005 kl. 10:04 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hilmar Rósmundsson, skipstjóri, var varaþingmaður af lista Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi árið 1978. Tók sæti á Alþingi á haustþinginu það ár. Fæddur á Siglufirði 16. október 1925. Foreldrar Rósmundur Guðnason, Jónssonar bónda að Heiði í Sléttuhlíð og kona hans María Jóhannsdóttir, Þorsteinssonar í Stórugröf í Skagafirði. Kvæntur (24. október 1950) Rósu Snorradóttur (fædd 3. september 1927) Guðmundssonar. Þau slitu samvisum. Gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskólanum á Ísafirði og fiskimannapróf hið meira frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1950. Skipstjóri á fiskiskipum frá 1955 og útgerðarmaður frá 1959. Átti sæti í stjórn skipstjórafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum og Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja og einnig í stjórn Norðlendingafélagsins í Eyjum.

Hilmar var Fiskikóngur Vestmannaeyja árin 1967 og 1968 með um 1000 lestir fyrra árið og 1191 skipslest það síðara. Þetta veiddi hann á vélbátnum Sæbjörgu.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.