Hermann Hreiðarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 15:03 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 15:03 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hermann Hreiðarsson er fæddur 11. júlí 1974. Hermann er kvæntur Rögnu Lóu Stefánsdóttur og eiga þau saman dæturnar Telmu og Ýdu. Ragna Lóa átti tvö börn áður, Stefán og Elsu.

Hermann lék allra yngri flokkana með ÍBV og lék með meistaraflokki félagsins til ársins 1997 er hann gekk til liðs við enska liðið Crystal Palace. Hermann hefur auk þess leikið með Brentford, Wimbledon og Ipswich en nú leikur hann með Charlton í ensku úrvaldsdeildinni.

Hermann á um 65 landsleiki að baki fyrir A-landslið Íslands en hefur auk þess leikið með yngri landsliðum Íslands.