„Helga Jónsdóttir (Húsavík)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Helga Jónsdóttir''' í Húsavík, húsfreyja fæddist 18. júlí 1902 og lést 29. desember 1949.<br> Foreldrar hennar voru Jón Jóhannesson bóndi, fiskimatsmaður, fræð...)
 
m (Verndaði „Helga Jónsdóttir (Húsavík)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 4. febrúar 2017 kl. 17:57

Helga Jónsdóttir í Húsavík, húsfreyja fæddist 18. júlí 1902 og lést 29. desember 1949.
Foreldrar hennar voru Jón Jóhannesson bóndi, fiskimatsmaður, fræðimaður, f. 2. júlí 1878, og kona hans Guðlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 20. febrúar 1881, d. 14. júní 1966.

Helga var með foreldrum sínum í æsku.
Hún fluttist til Eyja 1926 og bjó með Kjartani og óskírðum dreng á Eystri-Oddsstöðum 1930.
Þau eignuðust Brynjólf 1931, en misstu hann 1934.
Þau bjuggu í Húsavík 1940 með börnin Jón Ólaf og Margréti Rósu og enn 1945 með sömu áhöfn.
Helga lést 1949 og Kjartan 1960.

Börn þeirra:
1. Jón Ólafur Kjartansson verkamaður, vélstjóri, fiskimatsmaður, verkalýðsforingi, f. 16. júlí 1930 á Eystri-Oddsstöðum, d. 13. desember 2016.
2. Brynjólfur Kjartansson, f. 1. júlí 1931 á Eystri-Oddsstöðum, d. 12. júní 1934.
3. Margrét Rósa Kjartansdóttir húsfreyja og bóndi á Staðarbakka á Snæfellsnesi, f. 25. febrúar 1936 í Húsavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.