Helga Þorsteinsdóttir (París)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. febrúar 2014 kl. 14:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. febrúar 2014 kl. 14:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Helga Þorsteinsdóttir''' vinnukona fæddist f. 26. október 1805 á Leðri í Selvogi og lést 24. desember 1869.<br> Faðir hennar var Þorsteinn bóndi í Leðri í Selvogi, f...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Þorsteinsdóttir vinnukona fæddist f. 26. október 1805 á Leðri í Selvogi og lést 24. desember 1869.

Faðir hennar var Þorsteinn bóndi í Leðri í Selvogi, f. 1773, d. 28. ágúst 1811, Björnsson bónda á Brekkum á Rangárvöllum, f. 1748, d. 27. ágúst 1832, Ólafssonar bónda á Brekkum 1745, drukknaði 1756, Diðrikssonar, og konu Ólafs, Herborgar húsfreyju, f. 1717, d. 25. ágúst 1791, Jónsdóttur, Móðir Þorsteins og kona Björns á Brekkum var Helga húsfreyja, f. 1736, d. 19. ágúst 1819, Magnúsdóttir bónda á Grjótlæk í Stokkseyrar hreppi, f. 1695, Þorsteinssonar, og konu Magnúsar, Önnu húsfeyju, f. 1706, Brandsdóttur (Hluta-Brands) bónda í Auðsholti í Ölfusi.

Móðir Helgu var Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja á Leðri, f. 1774.

Helga var hjá föðurforeldrum sínum í Tungu á Rangárvöllum 1816. Hún var í fóstri við fermingu 1820 hjá Jóni Einarssyni og Þorlaugu Illugadóttur á Vogsósum.
Helga var vinnukona með son sinn, tökubarnið Jón Þorkelsson, hjá sér á Breiðabólstað 1835, vinnukona á Álfhólum í V-Landeyjum 1840.
Hún var vinnukona í Stóra-Gerði 1845, vinnukona í París 1860.

Barn Helgu með Þorkeli var Jón Þorkelsson sjómaður frá Þorkelshjalli, f. 1833, fórst með þilskipinu Helgu 1867.


Heimildir