Haukur Lárusson Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. september 2016 kl. 21:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. september 2016 kl. 21:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Haukur Lárusson Johnsen“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Haukur Johnsen.

Haukur Lárusson Johnsen sjómaður, verkamaður frá Görðum fæddist 17. nóvember 1914 á Ofanleiti og lést 17. maí 1957.
Foreldrar hans voru Lárus J. Johnsen útgerðarmaður, kaupmaður, f. 31. desember 1884, d. 15. október 1930, og barnsmóðir hans Guðlaug Oddgeirsdóttir verkakona, saumakona frá Ofanleiti, f. 20. janúar 1885, d. 21. desember 1966.

Fósturforeldrar Hauks voru Árni Jónsson útgerðarmaður í Görðum, f. 5. desember 1874, d. 8. ágúst 1954, og kona hans Kristín Ögmundsdóttir húsfreyja, f. 4. janúar 1885, d. 24. nóvember 1975.

Fóstursystkini Hauks og fósturbörn hjónanna voru:
1. Sigurjóna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 23. apríl 1916, d. 24. nóvember 1981, dóttir Ólafs Ingileifssonar formanns, f. 9. júní 1891, d. 14. febrúar 1968, og fyrstu konu hans Sigurjónu Sigurjónsdóttur húsfreyju, f. 26. maí 1897, d. 22. nóvember 1918. Maður Sigurjónu var Björn Guðmundsson kaupmaður og útgerðarmaður.
2. Sigurína Friðrikka Friðriksdóttir frá Látrum, bróðurdóttir Árna í Görðum, f. 22. desember 1922, d. 22. ágúst 2010. Foreldrar hennar voru Friðrik Jónsson útgerðarmaður og formaður á Látrum, f. 7. desember 1868, d. 29. október 1940, og kona hans Sigurína Katrín Brynjólfsdóttir húsfreyja, f. 7. maí 1884, d. 26. desember 1922.

Haukur var sjómaður og verkamaður í Görðum, ókvæntur og barnlaus.
Hann lést 1957 í Reykjavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.