Hans Hjálmar Hansen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. ágúst 2006 kl. 20:45 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. ágúst 2006 kl. 20:45 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hans Hjálmar Hansen fæddist í Vestmannaeyjum 7. janúar 1961. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Laugarvatni árið 1981 og prófi í Landafræði frá Háskóla Íslands árið 1985. Hans hefur unnið ýmis störf tengd kortagerð hjá Landmælingum og Náttúrufræðistofnun Íslands. Árið 2000 tók hann við kortadeild Verkfræðistofunnar Hnits hf. Hans er af sérfræðingum talinn einn af fremstu kortagerðarmönnum heims.

Hans hefur gefið út fjölda korta og kortabóka. Í ágúst 2006 vann „Íslandsatlasinn“ til þrennra verðlauna á stórri alþjóðlegri kortasýningu, m.a. sem besti atlasinn og heildarverðlaun yfir alla flokka.


Heimildir