„Hannes Jónsson (lóðs)“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
m
Ekkert breytingarágrip
m (Viglundur færði Hannes Jónsson á Hannes Jónsson (lóðs))

(3 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Hannes Lóðs.jpg|thumb|200px|Hannes lóðs.]]
[[Mynd:Hannes Lóðs.jpg|thumb|200px|Hannes lóðs.]]
'''Hannes Jónsson''' fæddist 21. nóvember 1852 í [[Nýi-Kastali|Nýja-Kastala]] í Eyjum. Faðir Hannesar drukknaði þegar Hannes var nokkurra mánaða gamall og ólst hann því upp hjá móður sinni og hóf eigin búskap þegar hann var 26 ára gamall, sama ár og hann kvæntist eiginkonu sinni, [[Margrét Brynjólfsdóttir|Margréti Brynjólfsdóttur]] frá [[Norðurgarður|Norðurgarði]]. Brynjólfur faðir hennar var lengi formaður á áttæringnum „Áróru“. Margrét var góð húsfreyja og eignuðust þau hjónin fjögur börn. Eitt af þeim, Jórunn, lifði langt fram á 20. öldina og var gift [[Magnús Guðmundsson (Vesturhúsum)|Magnúsi Guðmundssyni]] á [[Vesturhús]]um.
'''Hannes Jónsson''' fæddist 21. nóvember 1852 í [[Nýi-Kastali|Nýja-Kastala]] í Eyjum. Faðir Hannesar drukknaði þegar Hannes var nokkurra mánaða gamall og ólst hann því upp hjá móður sinni og hóf eigin búskap þegar hann var 26 ára gamall, sama ár og hann kvæntist eiginkonu sinni, [[Margrét Brynjólfsdóttir (Miðhúsum)|Margréti Brynjólfsdóttur]] frá [[Norðurgarður|Norðurgarði]]. Brynjólfur faðir hennar var lengi formaður á áttæringnum „Áróru“. Margrét var góð húsfreyja og eignuðust þau hjónin fjögur börn. Eitt af þeim, Jórunn, lifði langt fram á 20. öldina og var gift [[Magnús Guðmundsson (Vesturhúsum)|Magnúsi Guðmundssyni]] á [[Vesturhús]]um.

= Sjómennska =
= Sjómennska =
Lína 56: Lína 56:
:''við stýrið heim í höfn.
:''við stýrið heim í höfn.
::Hallfreður

::Hallfreður

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: [[Ritverk Árna Árnasonar/Hannes Jónsson]]
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*[[Eyjólfur Gíslason]]. Hannes Lóðs. ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1954.''
*[[Eyjólfur Gíslason]]. Hannes Lóðs. ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1954.''

=Frekari umfjöllun=
'''Hannes Jónsson''' lóðs, bóndi á [[Miðhús]]um, fæddur 21. nóvember 1852, dáinn 31. júlí 1937.

Faðir hans var [[Jón Hannesson (Nýja-Kastala)|Jón Hannesson]] tómthúsmaður í Nýjakastala, frá Meðallandi (Langholti), f. 1820. Jón drukknaði 21. október 1853 af skipinu [[Najaden, hákarlaskip|,,Najaden“]]  í hákarlaferð.

Móðir Hannesar var [[Margrét Jónsdóttir (Nýja-Kastala)|Margrét Jónsdóttir]] frá Núpi undir Eyjafjöllum. Hún var tvígift og var Jón Hannesson seinni maður hennar, en fyrri var [[Jón Gíslason (Tómthúsi)|Jón Gíslason]] sjómaður í [[Tómthús]]i (1845), en hann fórst líka í hákarlaferð með [[Morten Ericsen|Morten Ericsen]] 1847.

Barn Margrétar og Jóns Gíslasonar var [[Sesselja Jónsdóttir (Gvendarhúsi)|Sesselja]], kona [[Jón Jónsson í Gvendarhúsi|Jóns í Gvendarhúsi Jónssonar]], en börn Margrétar og Jóns Hannessonar voru [[Hannes lóðs]] og [[Jóhanna Jónsdóttir (Fögruvöllum)|Jóhanna]] kona [[Guðmundur Guðmundsson (Fögruvöllum)|Guðmundar]] á [[Fögruvellir|Fögruvöllum]] [[Guðmundur Guðmundsson (Fögruvöllum)|Guðmundssonar]].

Kona Hannesar var [[Margrét Brynjólfsdóttir (Miðhúsum)|Margrét]] dóttir [[Brynjólfur Halldórsson (Norðurgarði)|Brynjólfs]] bónda í [[Norðurgarður|Norðurgarði]]
[[Brynjólfur Halldórsson (Norðurgarði)|Halldórssonar]]. Þau giftu sig 16. október 1880, voru þá bæði 28 ára.

Börn Hannesar og Margrétar voru:

1. [[Jóhannes Hannesson (Miðhúsum)|Jóhannes]] kvæntur
[[Guðrún Jónsdóttir (Miðhúsum)|Guðrúnu Jónsdóttur]].

2. [[Jórunn Hannesdóttir (Vesturhúsum)|Jórunn]], varð kona [[Magnús Guðmundsson (Vesturhúsum)|Magnúsar Guðmundssonar]].

3. [[Hjörtrós Hannesdóttir (Miðhúsum)|Hjörtrós, Rósa]], varð kona [[Tómas M. Guðjónsson|Tómasar Guðjónssonar]], [[Sjólyst]].

Er mikil ætt frá þessu fólki komin.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara: Bjargveiðimannatal.'''''

Hannes var meðalhár, rösklega þrekinn mjög og sterkur, léttur á fæti og glaðlyndur.

Hann varð fljótt sjómaður, aðeins 11 ára, en varð formaður um tvítugt. Góður sjómaður, glöggur og gætinn, og harðduglegur alla ævi og skipaður lóðs um vorið 1895 og gegndi til dauðadags.

Við lundaveiðar var Hannes frá barnæsku. Henti hann það áfall að hrapa fyrir brún, en netið festist þar á nibbu lengst niðri í bjarginu, gjörsamlega ókleifu, en á óskiljanlegan hátt komst hann óafvitandi upp í brekku aftur, lamaður og ósjálfbjarga. Beið þessa aldrei fullar bætur, mjög skjálfhentur æ síðar og gat vart skrifað.

Hannes var gerður að heiðursborgara eyjanna, mætur og mikill maður í hverju starfi, þ.á.m. orðlagður veiðimaður lunda með gömlu
veiðiaðferðunum, – með netum og greflum.

{{Árni Árnason}}
[[Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.}}
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Hafnsögumenn]]
[[Flokkur:Hafnsögumenn]]

Leiðsagnarval