Hannes Hreinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. janúar 2006 kl. 13:52 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. janúar 2006 kl. 13:52 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Nýtt)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hannes Hreinsson flutti til Eyja á fyrri hluta 20. aldar. Hann var fæddur í Selshjáleigu í A-Landeyjum 2. okt. 1892, sonur Hreins Skúlasonar frá Hólmum (f. 1861 d. 1904, og konu hans Þórunnar Guðmundsdóttur (Diðrikssonar frá Hólmi) f. 1864. Seinni maður Þórunnar var Þorsteinn Gíslason f. 1865 d. 1954, bóndi í Hallgeirseyjarhjáleigu. Þorsteinn vann hjá Ísfélagi Vestmannaeyja eftir að hann flutti til Eyja 1921. Þórunn og Þorsteinn eignuðust tvo syni, Elías Ársæl sem lést ársgamall og Jóhann Kristin efnafræðing, sem lærði málaraiðn hjá Engilbert Gíslasyni í Eyjum en vann lengst af hjá Málningarverksmiðjunni Hörpu Reykjavík.

Eiginkona Hannesar var Vilborg Guðlaugsdóttir (Hróbjartssonar) frá Hallgeirsey í A-Landeyjum, f. 29. okt. 1892 d. 23. okt. 1932. Einn bræðra hennar var Hróbjartur Guðlaugsson sem lengi bjó í Landlyst, faðir Margrétar í Gvendarhúsi og Guðmundar, skósmiðs í Landlyst.

Hannes og Vilborg eignuðust dæturnar Magneu f. 1922, Jónu f. 1925 og Ástu f. 1929. Vilborg lést árið 1932 en 1936 gekk Hannes að eiga Jóhönnu Sveinsdóttur frá Miðkoti í Fljótshlíð, f. 23. maí 1896 d. 22. okt. 1949. Hannes og Jóhanna eignuðust dótturina Hrönn Vilborgu f. 1939.

Fyrstu ár sín í Eyjum stundaði Hannes sjómennsku, varð síðan verkstjóri við útgerð Kjartans Guðmundssonar ljósmyndara og síðar fiskimatsmaður. Hannes byggði húsið Hæli við Brekastíg, ásamt Sigurði Sigurðssyni járnsmið og flutti fjölskylda Hannesar inn árið 1923 en Sigurður ári fyrr.


Heimildir

  • Ásta S. Hannesdóttir frá Hæli.
  • Haraldur Guðnason, Saltfiskur og sönglist.
  • Landeyjabók - Austur-Landeyjar.