„Hannes Gíslason (Grímshjalli)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Hannes Gíslason''' tómthúsmaður í Grímshjalli fæddist í september 1828, líklega í Kokkhúsi, og lést 4. ágúst 1900.
Foreldrar hans voru [[Gí...)

Ekkert breytingarágrip
Lína 9: Lína 9:

Kona Hannesar (skildu) var [[Guðríður Guðmundsdóttir (Grímshjalli)|Guðríður Guðmundsdóttir]] húsfreyja, síðar vinnukona í [[Nýborg]], f. 21. júní 1825, d. 10. febrúar 1891.

Kona Hannesar (skildu) var [[Guðríður Guðmundsdóttir (Grímshjalli)|Guðríður Guðmundsdóttir]] húsfreyja, síðar vinnukona í [[Nýborg]], f. 21. júní 1825, d. 10. febrúar 1891.

Barn þeirra var:

Börn þeirra hér:

[[Andría Hannesdóttir (Grímshjalli)|Andría Hannesdóttir]], f. 1857, d. 1899.

1. [[Andría Hannesdóttir (Grímshjalli)|Andría Hannesdóttir]], f. 1857, d. 1899.

2. [[Jóhanna Hannesdóttir (Grímshjalli)|Jóhanna Hannesdóttir]], f. 1862.

{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].

Útgáfa síðunnar 25. júlí 2013 kl. 21:06

Hannes Gíslason tómthúsmaður í Grímshjalli fæddist í september 1828, líklega í Kokkhúsi, og lést 4. ágúst 1900.
Foreldrar hans voru Gísli Andrésson tómthúsmaður í Kokkhúsi, síðar bóndi í Görðum við Kirkjubæ, f. 18. maí 1791, d. 23. desember 1855, og fyrsta kona hans, (11. júní 1820), Sigríður Guðmundsdóttir, f. 2. maí 1793, d. 30. október 1833.

Hannes var fósturbarn í Grímshjalli 1835 og 1840, 18 ára vinnumaður í Hólmfríðarhjalli 1845, 22 ára fyrirvinna hjá Hólmfríði Erlendsdóttur 1850, sjávarbóndi í Grímshjalli 1860 og 1870.
Við manntal 1880 og 1890 var Hannes vinnumaður í Juliushaab hjá Gísla Engilbertssyni. Hann lést 1900.
Hannes mun vera sá, sem kallaður var „sladdi“. Sjá nánar um hann í Bliki 1960: Gengið á reka eftir Árna Árnasonar.

Hannes var bróðir Margrétar Gísladóttur konu Samúels Bjarnasonar mormónaprests og hálfbróðir, (af sama föður), Þorgerðar Gísladóttur fyrri konu Sigurðar Sigurfinnssonar, foreldra Högna Sigurðssonar í Vatnsdal.

Kona Hannesar (skildu) var Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja, síðar vinnukona í Nýborg, f. 21. júní 1825, d. 10. febrúar 1891.
Börn þeirra hér:
1. Andría Hannesdóttir, f. 1857, d. 1899.
2. Jóhanna Hannesdóttir, f. 1862.

Heimildir