Hani

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Nafn eyjunnar er dregið af því að hún lítur út fyrir að vera með kamb. Hani er 97 m hár, hæstur þar sem heitir Hanahöfuð. Eyjan er umkringd háum hömrum sem eru víðast þverhníptir nema helst að vestanverðu. Í brekkunni móti suðri vex bæði gras, skarfakál og slatti af baldursbrá. Veiðikofi er í Hana og legið þar við á sumrum í lundaveiði. Þá hefur og sauðfé verið haft þar til beitar.