Hallur Eiríksson (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. mars 2014 kl. 15:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. mars 2014 kl. 15:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Hallur Eiríksson (Presthúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Hallur Eiríksson bóndi í Presthúsum fæddist 1762 og lést 19. mars 1804 úr „gulusótt“.

Hallur var bóndi á öðru býlinu í Presthúsum 1801.

Kona Halls, (10. júní 1787), var Snjófríður Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1752, d. 1. febrúar 1824.
Af 6 börnum þeirra lifði eitt til fullorðinsára.
Börn þeirra hér:
1. Valgerður Hallsdóttir, f. 30. júní 1789, d. 19. júlí 1789 „af Bráðaveiki“.
2. Guðríður Hallsdóttir, f. 3. september 1790, d. 8. september 1790 úr ginklofa.
3. Valgerður Hallsdóttir, f. 20. desember 1791, d. 6. janúar 1792 úr ginklofa.
4. Valgerður Hallsdóttir húsfreyja, f. 20. febrúar 1793, d. 22. júní 1863.
5. Eiríkur Hallsson, f. 5. desember 1796, d. 10. desmber 1796 úr ginklofa.
6. Bjarnveig Hallsdóttir, f. 9. desember 1799, d. 18. desember 1799 úr ginklofa.


Heimildir