Halldór Kolbeins

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 08:54 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 08:54 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Kolbeins, 1945 til 1961. Fæddur að Staðarbakka í Miðfirði. Foreldrar hans voru séra Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson á Staðarbakka og kona hans Þórey Bjarnadóttir. Stúdent í Reykjavík 1915. Cand. theol. frá Háskóla Íslands 1920. Lauk einnig kennaraprófi sama ár. Fékk veitingu fyrir Flatey 1921, Stað í Súgandafirði 1925, Mælifelli 1941. Settur til prestþjónustu í Vestmannaeyjum 1938 til 1939. Fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjaprestakalli 1945 og gendi því til ársins 1961. Séra Halldór lést í Reykjavík 1964. Kona hans var Lára Ágústa Ólafsdóttir bónda í Hvallátrum á Breiðafirði, Bergsveinssonar. Áttu þau sex börn.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.