Höskuldur Rafn Kárason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2007 kl. 15:33 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2007 kl. 15:33 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Höskuldur Rafn Kárason er fæddur á Siglufirði 12. maí 1950. Hann á fjögur börn, þau heita Guðrún Sonja, Kári, Ármann og Jónas. Höskuldur er kvæntur Sigurleif Guðfinnsdóttur og þau eiga saman Ármann og Jónas. Höskuldur og Sigurleif búa á Vallargötu 14.

Hann starfar sem vinnueftirlitsmaður ríkisins á Suðurlandi og er formaður Sjálfsbjargar í Vestmannaeyjum.

Hann er meistari í rennismíði, sjúkraliði, vélavörður og hefur mikið verið í því að smíða klukkur og penna. Hann er einnig mikill áhugamaður um ættfræði.