„Högni Stefánsson prestur“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Séra Hákon Stefánsson''' fæddist 8. maí 1771 og lést 24. september 1837.<br> Foreldrar hans voru sr. Stefán Högnason Sigurðssonar prestur á Breiðabólstað í Fljótshl...)
 
m (Verndaði „Högni Stefánsson prestur“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 15. júlí 2015 kl. 14:21

Séra Hákon Stefánsson fæddist 8. maí 1771 og lést 24. september 1837.
Foreldrar hans voru sr. Stefán Högnason Sigurðssonar prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð, f. 15. maí 1724, d. 27. nóvember 1801, og kona hans Guðrún Halldórsdóttir húsfreyja, f. 1728, d. 16. júní 1801.

Högni nam í fyrstu hjá systurmanni sínum sr. Þorvaldi Böðvarssyni, varð stúdent úr heimaskóla 1790 frá Gísla Thorlacius rektor.
Hann var bóndi á Árgilsstöðum í Hvolhreppi 1793, vígðist til prests 1807 og þá aðstoðarprestur sr. Bjarnhéðins Guðmundssonar á Kirkjubæ, fluttist þangað 1808 og gegndi embættiststörfum fyrir hann í veikindum hans til ársins 1817, fékk Hrepphóla í Hrunamannahreppi 1816 og gegndi frá vori 1817 til dd. 1837.
Kunnastur mun hann vera i Eyjum vegna Áminningarræðunnar, sem hann hélt í Landakirkju yfir nokkrum bátsformönnum vegna þess, sem hann taldi glannalega sjósókn þeirra.

Kona Högna, (29. september 1793), var Sigríður Böðvarsdóttir húsfreyja, f. í ágúst 1767, d. 9. desember 1844.
Börn þeirravoru:
1. Sr. Böðvar Högnason aðstoðarprestur á Hallormsstað, f. 24. júlí 1794, d. 15. apríl 1835 úr holdsveiki, ókv. og barnlaus.
2. Þórunn Högnadóttir húsfreyja í Móakoti á Vatnsleysuströnd, f. 1795, kona Guðmundar Guðmundssonar.
3. Stefán Högnason, f. 1799, d. úr holdsveiki, ókv. og barnlaus.
4. Hólmfríður Högnadóttir, f. 1801, d. 1845, óg. og barnlaus.
5. Sr. Jón Högnason prestur á Hrepphólum, f. 23. mars 1807, d. 23. júní 1879, kvæntur Kristínu Jónsdóttur húsfreyju frá Reykjadal.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.