Guðjón Hjörleifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2005 kl. 16:46 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2005 kl. 16:46 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Hjörleifsson var bæjarstjóri Vestmannaeyja frá árinu 1990 til ársins 2002. Foreldrar hans eru Hjörleifur Guðnason múrarameistari og Inga Jóhanna Halldórsdóttir.

Guðjón Hjörleifsson, alþingsmaður.

Guðjón hóf nám á verslunarbraut árið 1973 og var starfsmaður Verslunar Gunnars Ólafssonar & Co. hf. frá 1973 til 1975. Hann var starfsmaður Sparisjóðs Vestmannaeyja 1975, fyrst sem gjaldkeri en síðan ráðinn sem skrifstofustjóri þar og var hann þar til ársins 1990 er hann var ráðinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Á árunum 2002-2003 starfaði Guðjón sem útibússtjóri Sjóvár Almennra hf. í Vestmannaeyjum.

Frá 2002 hefur Guðjón setið á Alþingi sem 5. þingmaður Suðurkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Á Alþingi hefur Guðjón átt sæti í eftirfarandi nefndum:

  • Sjávarútvegsnefnd, frá 2004 (formaður)
  • Félagsmálanefnd, frá 2003
  • Menntamálanefnd, 2003-2004
  • Samgöngunefnd, frá 2003
  • Íslandsnefnd VES-þingsins, frá 2003


Guðjón sat í stjórn Eyverja í 11 ár og var í eitt ár formaður félagsins. Hann sat í stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Þá var Guðjón einn stofnanda ungtemplarafélagsins Flakkarans í Vestmannaeyjum ásamt því að vera formaður Nemendafélagsins í Gagnfræðiskóla Vestmannaeyja. Guðjón sat um tíma í stjórn Íþróttafélagsins Þórs.

Eiginkona Guðjóns er Rósa Elísabet Guðjónsdóttir og eiga þau 4 börn, Sæþór Orra, Silju Rós, Söru Dögg og Sindra Frey.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.
  • Vefur Alþingis