Guðrún Magnúsdóttir (ljósmóðir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. október 2006 kl. 12:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. október 2006 kl. 12:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún fæddist 10. júlí 1851 að Dalseli í V-Eyjafjallahreppi og lézt í Eyjum 15. júní 1936.
Foreldrar hennar voru Magnús bóndi í Dalseli, f. 29. marz 1801, d. 21. nóv. 1869, Þórodds bónda í Dalseli, f. 1761 í Dalseli, Gissurarsonar og konu Þórodds, Guðrúnar húsfreyju, f. 1768 í Nesi í Selvogi, Sigurðardóttur. Móðir Guðrúnar Magnúsdóttur og kona Magnúsar var Guðríður húsfreyja, f. 2. maí 1812, d. 25. júlí 1884, Ólafs bónda og klukkara í Múlakoti í Fljótshlíð, f. 1776 í Deild í Teigssókn í Fljótshlíð, Árnasonar og konu Ólafs, Þórunnar húsfreyju Þorsteinsdóttur, f. 1790 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal.
Guðrún lauk ljósmæðranámi í Reykjavík 7. júní 1878.
Hún var ljósmóðir í Vestur-Eyjafjallaumdæmi 10. júní 1878-30. maí 1897, flutti til Eyja 1900 og aðstoðaði skipaða ljósmóður þar til ársins 1924. Einnig stundaði hún tóvinnu, einkum prjónaskap.
Er hún bjó u. Eyjafjöllum kynntist hún mormónatrú eins og Eiríkur frá Brúnum Ólafsson túlkaði hana. Stóð hún mitt í þeirri orrahríð, sem varð þar við kirkju, er aðsúgur var gerður að Eiríki og varð hún honum til bjargar frá meiðslum. Var í minnum haft, hvernig söfnuðurinn lét undan síga við orð hennar. (Þessi atburður er túlkaður í Paradísarheimt Halldórs Kiljans Laxness).
Guðrún var stofnfélagi Betelsafnaðar Hvítasunnumanna í Eyjum í júlí 1926 og var mjög virk í safnaðarstarfi.
Maki I (12. júní 1873): Þórður bóndi í Syðri-Rotum í Landeyjum, síðar í Hamragörðum u. Eyjafjöllum, f. 1. júní 1846, d. 15. apríl 1887, Jónsson bónda á Borgareyrum og Ólafar Þórðardóttur.
Börn: Guðríður heimiliskennari í Eyjafjallahreppi, síðar í Eyjum, f. 31. ágúst 1873, d. í sept. 1921; Magnús, f. 20. sept. 1874, kvæntur í Eyjum, skildi og fór til Vesturheims; Ísleifur, f. 29. okt. 1876, d. 3. sept. 1895; Karólína, f. um 1884, d. 15. júlí 1886.
Maki II (4. okt. 1890): Markús bóndi að Hamragörðum og Lágafelli, f. 25. júlí 1860 í Stóru-Hildisey, d. 31. okt. 1898, Þórðarson bónda í Stóru-Hildisey, f. um 1812, Guðnasonar og konu Þórðar, Margrétar Jónsdóttur húsfreyju, f. um 1820.
Börn: Markús, f. 25. jan. 1891, d. 9. apríl 1893; Karólína, f. 1892, d. 11. nóv. 1894; Þórunn, f. 24. 10. 1894, d. 1. júní 1921, gift Jóni Gíslasyni bónda að Lágafelli, síðar útgerðarmanni og smið á Ármótum í Eyjum,- „Jóni á Ármóti”. Þau voru foreldrar Markúsar og Þórarins.

Heimildir:

  • Ljósmæður á Íslandi.
  • Þorsteinn Þ. Víglundsson: Guðrún Magnúsdóttir ljósmóðir 1851-1936. Blik 1972, bls. 155-171.
  • Manntöl.