Guðrún Magnúsdóttir (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2012 kl. 10:47 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2012 kl. 10:47 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðrún Magnúsdóttir


Guðrún

Guðrún Magnúsdóttir frá Búastöðum fæddist 12. júlí 1865 að Berjanesi í Landeyjum og lést 24. september 1936.

Hún var gift Gísla Eyjólfssyni. Þau giftust 14. maí 1894 og fengu þá byggingu fyrir jörðinni Eystri-Búastöðum. (Nyrðri-Búastöðum, eins og þau hétu áður en nýtt hús var byggt.)
Þau eignuðust fimm börn:

  • Lovísa, f.1895 d.1979 í Vestmannaeyjum, kona Bryngeirs Torfasonar
  • Eyjólfur f.1897 d.1995 í Reykjavík
  • Jórunn, f.1899, d.1916 í Reykjavík
  • Magnús, f.1904, d.1904
  • Margrét Magnúsína, f.1906, d.1906.

Myndir