Guðrún Guðmundsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2014 kl. 17:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2014 kl. 17:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Guðmundsdóttir''' húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 1749 og lést 12. febrúar 1817.<br> Foreldrar hennar voru sr. [[Guðmundur Högnason (prestur)|Guðmundur Högnason...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 1749 og lést 12. febrúar 1817.
Foreldrar hennar voru sr. Guðmundur Högnason prestur á Kirkjubæ, f. 1713, d. 6. febrúar 1795, og kona hans Guðrún Hallsdóttir húsfreyja, f. 1725, d. 16. desember 1785.

Börn sr. Guðmundar og Guðrúnar í Eyjum voru:
1. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1749, d. 12. febrúar 1817. Maki er ókunnur.
2. Guðmundur Guðmundsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1753, d. 28. september 1825. Kona hans var Þuríður Einarsdóttir
3. Anna Guðmundsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 1757, d. 17. apríl 1849, kona sr. Bjarnhéðins Guðmundssonar.
4. Rakel Guðmundsdóttir húsfreyja í Gvendarhúsi, f. 1758, d. 20. febrúar 1793, kona Bergsteins Guðmundssonar.
5. Árni Guðmundsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1762, d. 21. apríl 1819.

Maður Guðrúnar og barneignir eru ekki skráðar, enda eru giftingar og barnsfæðingar fyrst skráðar í Eyjum árið 1786.

Við manntal 1801 var Guðrún 52 ára ekkja og vinnukona í heimili Önnu systur sinnar á Kirkjubæ Við andlát 1785 var hún skráð ekkja á Kirkjubæ, dó af „ellilasleika“.


Heimildir