„Guðrún Þórðardóttir (Vegg)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða:
Guðrún Þórðardóttir húsfreyja í Vegg fæddist 19. ágúst 1849 og lést 12. júní 1921.
Foreldrar hennar voru [[Þórður Einarsson (Vilborgarstöðum)|Þ...)

Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:

Guðrún Þórðardóttir húsfreyja í [[Veggur|Vegg]] fæddist 19. ágúst 1849 og lést 12. júní 1921.

'''Guðrún Þórðardóttir''' húsfreyja í [[Veggur|Vegg]] fæddist 19. ágúst 1849 og lést 12. júní 1921.

Foreldrar hennar voru [[Þórður Einarsson (Vilborgarstöðum)|Þórður Einarsson]] sjávarbóndi á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], f. 4. október 1822, d. fyrir manntal 1860, og kona hans [[Ástríður Jónsdóttir (Vilborgarstöðum)|Ástríður Jónsdóttir]] húsfreyja, f. 28. júlí 1825, d. 3. janúar 1904.

Útgáfa síðunnar 12. október 2013 kl. 22:03

Guðrún Þórðardóttir húsfreyja í Vegg fæddist 19. ágúst 1849 og lést 12. júní 1921.
Foreldrar hennar voru Þórður Einarsson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 4. október 1822, d. fyrir manntal 1860, og kona hans Ástríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. júlí 1825, d. 3. janúar 1904.

Guðrún var tveggja ára með foreldrum sínum á Löndum 1850, 11 ára með ekkjunni móður sinni á Vilborgarstöðum 1860. Hún var 21 árs vinnukona í Svaðkoti hjá Bjarna Ólafssyni og Ragnheiði Gísladóttur 1870, 30 ára vinnukona í Frydendal hjá Jóhanni Johnsen og Önnu Sigríði Árnadóttur 1880 og þar var Sigurður Ólafsson vinnumaður.
1890 var Guðrún húsfreyja í Litlakoti með Sigurði bónda og barninu Ólafi Diðriki 9 ára.
1901 var Guðrún húsfreyja í Vegg, en það var nýtt nafn á Litlakoti. Þar voru einnig Ólafur Diðrik sonur þeirra og Una Jónsdóttir frændkona þeirra.
1910 bjuggu hjónin í Vegg. Ólafur Diðrik bjó á Strönd með Guðrúnu konu sinni og fimm börnum sínum, en 1920 voru þau Guðrún og Sigurður skráð til heimilis í Litlakoti (Vegg).
Maður Guðrúnar, (1886), var Sigurður Ólafsson sjávarbóndi í Vegg, f. 10. október 1860, d. 10. mars 1931.
Barn þeirra var
Ólafur Diðrik Sigurðsson útvegsbóndi á Strönd, f. 12. febrúar 1881, d. 4. október 1944.

Heimildir