Guðrún Ólafsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. ágúst 2013 kl. 12:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. ágúst 2013 kl. 12:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Ólafsdóttir''' húsfreyja í Norðurgarði fæddist 1833, á lífi 1880.<br> Faðir hennar var Ólafur bóndi í Gerðakoti undir Eyjafjöllum, f. 3. ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Norðurgarði fæddist 1833, á lífi 1880.
Faðir hennar var Ólafur bóndi í Gerðakoti undir Eyjafjöllum, f. 3. október 1809 á Kirkjulandi í A-Landeyjum, d. 30. mars 1859, Pétursson bónda í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, f. í Berjanesi í V-Landeyjum, skírður 13. nóvember 1782, d. 5. október 1836 í Eyjum, Ólafssonar bónda í Berjanesi, f. 1749, d. 27. desember 1816, Magnússonar, og konu Ólafs, Steinunnar húsfreyju, f. 1750, d. 27. september 1835, Hjatrardóttur.
Móðir Ólafs í Gerðakoti og fyrri kona Péturs í Hólmahjáleigu var Sigríður húsfreyja, f. 1773, d. 30. september 1826, Jónsdóttir bónda og formanns á Efri-Úlfsstöðum í A-Landeyjum, f. 1745 í Álfhólahjáleigu í V-Landeyjum, d. 11. febrúar 1830 í Hörgsholti í Hrunamannahreppi, Sigurðssonar, og konu Jóns, Guðfinnu húsfreyju, f. 1744, d. 3. desember 1818, Magnúsdóttur.
Ólafur faðir Guðrúnar í Norðurgarði var bróðir Þóru Pétursdóttur móður Péturs í Þorlaugargerði afa hinna eldri Oddsstaðasystkina og Þóra var langamma Vesturhúsasystkina, barna Guðmundar Þórarinssonar.

Móðir Guðrúnar og barnsmóðir Ólafs í Gerðakoti var Guðrún Valtýsdóttir, síðar húsfreyja í Presthúsum f. 1806, d. 6. júní 1866.

Guðrún var 2 ára með vinnukonunni Guðrúnu Valtýsdóttur móður sinni á Moldnúpi u. Eyjafjöllum 1835, 8 ára niðursetningur á prestsetrinu í Holti þar 1840, 13 ára dóttir bóndans Ólafs Péturssonar í Gerðakoti þar 1845.
Hún var 17 ára vinnukona á Kirkjubæ 1850, gift húsfreyja í Norðurgarði 1860 með Ísaki Jakob og börnunum Steinunni 5 ára og Jóni 2 ára.
1870 var hún gift húskona í Grímshjalli með Steinunni Ísaksdóttur 13 ára og Hjálmfríði Björgu Ísaksdóttur 4 ára.
1880 var hún skilin húskona í Grímshjalli með Hjálmfríði Björgu 14 ára dóttur sinni.
Hún finnst ekki á manntali í Eyjum 1890.

Maður Guðrúnar, (skildu), var Ísak Jakob Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 1833, á lífi 1890.
Börn Guðrúnar og Ísaks Jakobs hér:
1. Steinunn Ísaksdóttir húsfreyja og verkakona, f. 22. október 1856, d. 31. janúar 1920.
2. Jón Ísaksson sjómaður, f. 11. mars 1859, d. 20. ágúst 1890, hrapaði í Ystakletti.
3. Hjálmfríður Björg Ísaksdóttir húsfreyja á Bergsstöðum 1910, f. 4. október 1865, d. 13. maí 1953.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.