Guðríður Jónsdóttir (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. janúar 2016 kl. 22:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2016 kl. 22:19 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Jónsdóttir húsfreyja á Búastöðum, fæddist 6. ágúst 1829 og lést 15. ágúst 1867.
Foreldrar Guðríðar voru Vigdís Þorbjörnsdóttir húsfreyja í Svaðkoti, f. 9. nóvember 1800, d. 23. febrúar 1860 og fyrri maður hennar Jón Þorkelsson bóndi f. í nóvember 1795 í Danska Garði, d. 5. mars 1834, drukknaði.

Guðríður var 11 ára með móður sinni og stjúpa í Svaðkoti 1840, 17 ára þar 1845, 21 árs þar 1850, 31 árs húsfreyja á Búastöðum 1860.
Hún dó tveim dögum eftir barnsburð.

Maður Guðríðar var Sigurður Torfason hreppstjóri á Búastöðum, f. 14. febrúar 1822, d. 18. apríl 1870.
Börn Guðríðar og Sigurðar hér:
1. Jón Sigurðsson, f. 25. febrúar 1851, d. 11. mars 1851 „af Barnaveikin ginklofa“.
2. Guðrún Sigurðardóttir, f. 18. september 1852, d. 21. mars 1939, vinnukona í Godthaab 1870 og í Reykjavík 1910 og 1920.
3. Hjálmar Sigurðsson, f. 17. ágúst 1853, d. 30. október 1853 „af barnaveiki“.
4. Jón Sigurðsson, f. 22. ágúst 1854, d. 16. nóvember 1854, „dó hastarlega án þess að merki væru um nokkurn sjúkleika“.
5. Einar Sigurðsson, f. 25. febrúar 1856, drukknaði 31. mars 1889. Hann var stýrimaður og skipstjóri, fórst með hákarla- og handfæraveiðskipinu Reykjavík.
6. Tómas Sigurðsson, f. 24. mars 1857, d. 5. apríl 1857 úr ginklofa.
7. Sigríður Sigurðardóttir, f. 24. júní 1859, niðursetningur í París 1870, húskona í Reykjavík 1910, d. 25. janúar 1940. Sonur hennar var Sigurður Einar Ingimundarson verslunarmaður hjá J.P.T. Bryde (mt 1910), f. 21. ágúst 1895, d. 12. apríl 1979.
8. Vilborg Sigurðardóttir, f. 9. júní 1858, d. 20. júní 1858 úr ginklofa.
9. Vilhjálmur Sigurðsson, f. 14. ágúst 1860, d. 2. febrúar 1861 af bólguígerð.
10. Torfi Sigurðsson skipasmiður í Norðurbæ á Eyrarbakka 1930, f. 11. nóvember 1861, d. 19. september 1950.
11. Bjarni Sigurðsson, f. 5. ágúst 1863, d. 10. desember 1863 úr „uppdráttarsýki‟.
12. Gróa Björg Sigurðardóttir vinnukona, f. 26. maí 1865, d. 12 júlí 1882.
13. Guðríður Sigurðardóttir, f. 13. ágúst 1867, d. 1918, niðursetningur á Löndum 1870, léttastúlka í Jómsborg 1880, vinnukona í Batavíu 1890.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.