Guðný Hálfdanardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Hálfdanardóttir húsfreyja, verkakona, ræstitæknir fæddist 26. febrúar 1934 á Staðarhóli við Kirkjuveg 57 og lést 13. júní 2019.
Foreldrar hennar voru Hálfdan Þorsteinsson frá Vattarnesi, sjómaður, bóndi, verkamaður, f. þar 27. september 1904, d. 22. júlí 1981, og kona hans Guðbjörg Daníelsdóttir frá Kolmúla við Reyðarfjörð, húsfreyja, f. þar 16. febrúar 1915, d. 1. janúar 2000.

Börn Guðbjargar og Hálfdanar:
1. Guðný Hálfdanardóttir húsfreyja, ræstitæknir í Hafnarfirði, f. 26. febrúar 1934 á Staðarhóli, d. 13. júní 2019. Fyrrum maður hennar Jón Brynjólfsson. Maður hennar Guðmundur Þórðarson, látinn.
2. Helena Hálfdanardóttir húsfreyja, sjúkraliði í Reykjavík, f. 23. júní 1935 á Staðarhóli, d. 22. apríl 2014. Fyrrum maður hennar Rafn Benediktsson.
3. Sigurbjörg Hálfdanardóttir húsfreyja í Hafnarfirði, sjúkraliði, húsvörður, f. 30. júlí 1942 í Kolmúla í Reyðarfirði, d. 10. mars 2007. Fyrrum maður hennar Ljótur Ingason.
4. Þorsteinn Hálfdanarson skipasmiður, slökkviliðsmaður, f. 12. október 1945. Kona hans Ásta Sigurðardóttir.
5. Steingrímur Hálfdanarson loftskeytamaður, f. 13. apríl 1949. Kona hans Jóhanna Þ. Ingimarsdóttir.
6. Daníel Hálfdanarson röntgentæknir, húsvörður, f. 2. ágúst 1954. Kona hans Erna Ingibjörg Pálsdóttir.

Guðný var með foreldrum sínum í æsku, í Eyjum til 1940, flutti með þeim að Kolmúla og síðan að Vattarnesi, flutti með þeim til Hafnarfjarðar 1950 og bjó með þeim á Selvogsgötu 8.
Hún vann við fiskvinnslu og ræstingar auk heimilisstarfa.
Þau Jón giftu sig 1954, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Jófríðarstaðaveg 3 og Selvogsgötu 8 í Hafnarfirði, en skildu.
Þau Guðmundur giftu sig 1989, voru barnlaus.
Guðmundur lést 2017. Guðný dvaldi síðast á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún lést 2019.

I. Maður Guðnýjar, (19. nóvember 1954, skildu), er Jón Oddur Brynjólfsson smiður, f. 24. nóvember 1932. Foreldrar hans voru Brynjólfur Brynjólfsson sjómaður, umsjónarmaður, f. 25. apríl 1899, d. 2. janúar 1993, og kona hans Guðný Ólöf Magnúsdóttir húsfreyja, f. 26. nóvember 1908, d. 4. júní 1990.
Börn þeirra:
1. Brynjólfur Jónsson kennari, BA-ljósmyndari, f. 22. ágúst 1957. Kona hans Sigrún Víglundsdóttir Þorsteinssonar.
2. Hálfdan Jónsson verslunarstjóri, f. 21. febrúar 1953, d. 30. janúar 2019. Fyrrum kona hans Margrét Gísladóttir. Kona hans Lovísa Matthíasdóttir.
3. Guðbjörg Jónsdóttir sjúkraliði, f. 5. október 1961. Fyrrum menn hennar Ágúst Hinriksson og Jón Valur Guðmundsson.
4. Hreinn Jónsson iðnaðarmaður, verkamaður, f. 4. júlí 1967. Fyrrum konur hans Steinunn Ólöf Hjartardóttir og Linda Rós Jóhannsdóttir. Kona hans Bryndís Sveinsdóttir.

II. Maður Guðnýjar, (26. desember 1989), var Guðmundur Þórðarson vélstjóri, húsvörður, f. 26. desember 1939, d. 3. október 2017. Foreldrar hans voru Þórður Guðmundsson verslunarmaður, f. 10. júlí 1919, d. 24. maí 1972 og kona hans Ingibjörg Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 23. júní 1920, d. 11. febrúar 1995. Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.