Guðný Erlendsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. apríl 2015 kl. 11:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. apríl 2015 kl. 11:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Erlendsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum og í Miðskála u. Eyjafjöllum fæddist 3. desember 1788 og lést 18. júní 1844.
Foreldrar hennar voru Erlendur Einarsson bóndi á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, f. 1748, d. 15. maí 1818, og kona hans Guðný Pétursdóttir húsfreyja, f. 12. október 1755, d. 10. janúar 1840.

Guðný var með fjölskyldu sinni á Hrútafelli 1801.
Hún var vinnukona á Ofanleiti 1816. Þar var Brynjólfur Brynjólfsson vinnumaður. Guðný var húsfreyja á Vilborgarstöðum 1817, var á Seljalandi u. Eyjafjöllum 1818, fluttist að Miðskála þar með fjölskyldu sína 1820, bjó þar 1835, í Efsta-Koti þar 1840.
Guðný lést 1844.

Maður Guðnýjar,(13. júlí 1817), var Brynjólfur Brynjólfsson bóndi, f. 21. febrúar 1791, d. 26. maí 1866.
Börn þeirra fæddust öll í Miðskála nema elsta barnið Guðríður, sem fæddist á Seljalandi:
1. Guðríður Brynjólfsdóttir, f. 2. ágúst 1818.
2. Pétur Brynjólfsson, f. 3. mars 1821, d. 22. nóvember 1906.
3. Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 28. apríl 1822, d. 4. júlí 1888 í Utah.
4. Guðný Brynjólfsdóttir, f. 21. apríl 1823.
5. Erlendur Brynjólfsson, f. 20. ágúst 1824.
6. Brynjólfur Brynjólfsson, f. 24. nóvember 1825, d. 27. maí 1866 í Eyjum.
7. Erlendur Brynjólfsson yngri, f. 2. september 1828.
8. Guðmundur Brynjólfsson, f. 25. maí 1831, d. 13. október 1893.
9. Einar Brynjólfsson, f. 5. september 1833.


Heimildir